
Um daginn sagði ég í Kastljósi að Fjármálaeftirlitið hefði spilað með „hinu liðinu“.
Einhverjir hneyksluðust á þessum ummælum.
En nýr viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, sagði það sama þegar hann tók við embætti.
Gylfi kvaðst telja að hugmyndafræðin sem var að baki öllu eftirliti með fjármálakerfinu, ekki einungis Fjármálaeftirlitinu heldur snerti það einnig Seðlabankann, hafi í grundvallaratriðum verið röng. Þegar hugmyndafræðin sé röng skili starf fólksins ekki tilætluðum árangri. Hann kvaðst ekki vera að gagnrýna störf starfsfólksins en því miður hafi pólitíska forystan og æðstu embættismenn verið með ranga sýn á hvernig ætti að hefta fjármálakerfið.
„Það var þvert á móti beinlínis ætlast til þess að þessar stofnanir væru ekki að hefta fjármálakerfið og vöxt þess heldur að styðja fjármálakerfið í frekari vexti og útrás,“ sagði Gylfi.
Aðspurður sagði Gylfi að þessar stofnanir hafi beinlínis verið í vitlausu liði. „Nú ætlum við að sjá til þess að þær fari að vinna í réttu liði.“