
Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, og Steingrímur J. Sigfússon, sem nú er orðinn íslenskur starfsbróðir hennar, eru góðir vinir – og formenn systurflokka.
Hún hefur komið hingað á flokksþing Vinstri grænna. Var þá meðal annars gestur í Silfri Egils.
Bæði Kristin og Steingrímur eru andstæðingar Evrópusambandsins.
En þessi yfirlýsing Kristinar um hugsanlegt myntsamstarf Noregs og Íslands sætir stórpólitískum tíðindum. Þarna talar formaður annars stjórnarflokksins í Noregi.
Í framhaldi af þessu þarf að leita álits Jens Stoltenberg forsætisráðherra.
Ef Steingrími tækist að koma þessu í kring, þá myndi það breyta stöðu Íslands ansi mikið. Og hugsanlega slá á frest hugmyndum um Evrópusambandsaðild.