
Fólk sem er aðeins yngra en ég og gekk í MR var sumt í hans bekk.
Það er að segja – það var í bekk með Hans Beck.
Sem síðar varð læknir á Reykjalundi, og er með skemmtilegustu mönnum.
Á bloggi sínu birtir Hans svohljóðandi vísu sem hann segist hafa ort á göngu í Norðurmýrinni í vetur:
Fagna ég mjöll sem fellur
fögur á nætur stræti.
Þagnar þjóð í logni
þreytu er svefnins leitar.
Óspjölluð mjöllin að morgni
marin er fótum offari.