
Það hefur verið sagt að Bjarni Benediktsson, formannskandídat í Sjálfstæðisflokknum sé laukur gamals ættarveldis.
Þetta má til sanns vegar færa.
Faðir hans er Benedikt Sveinsson. Hann var um tíma stjórnarformaður Eimskipafélagsins, áður en Kolkrabbinn leið undir lok, og reyndar var sagt að honum væri ætlað að taka við af Halldóri heitnum H. Jónssyni sem var gjarnan kallaður „stjórnarformaður Íslands“. Benedikt var einnig um skeið stjórnarformaður í Skeljungi.
Föðurbróðir Bjarna er Einar Sveinsson, fyrrverandi forstjóri Sjóvár-Almennra. Eins og Benedikt bróðir hans hefur hann verið stjórnarmaður í ýmsum stórfyrirtækjum.
Afi Bjarna var Sveinn Benediktsson athafnamaður. Hann er frægastur fyrir miklar deilur sem hann átti í við verkamenn á Siglufirði 1932.
Bræður Sveins voru Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Pétur Benediktsson sendiherra.
Sonur Bjarna er Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Dóttir Péturs er Guðrún Pétursdóttir forsetaframbjóðandi.
Systir þeirra var Kristjana, móðir Halldórs Blöndal, fyrrverandi forseta Alþingis og samgönguráðherra.
Faðir þeirra var Benedikt Sveinsson alþingismaður frá 1908 til 1931.
Seta fjölskyldumeðlima á Alþingi er nánast samfelld síðan þá, í heila öld.