
Þetta er pínu sorglegt. Gordon Brown segir að London verði ekki Reykjavík við Thames.
Reykjavík og Ísland eru orðin alþjóðleg samheiti fyrir efnahagslega óstjórn og fjárglæfra.
Við sitjum líklega uppi með þetta um langa framtíð.
Ég man að ég var ekki gamall þegar ég heyrði um Nýfundnaland, ríkið sem varð gjaldþrota.
Þetta er ekki falleg arfleifð sem útrásarvíkingarnir skilja eftir – ofan í skuldirnar.