fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Hvað er Geir að fara?

Egill Helgason
Föstudaginn 30. janúar 2009 15:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvernig getur Geir Haarde haldið því fram að ástandið í samfélaginu verði svipað og árið 2006?

Því er spáð að atvinnuleysi fari í 11 prósent.

Verðbólga hefur slagað í 20 prósent mánuðum sama, en laun eru að lækka.

Bankakerfið er nánast fallít og enga lánafyrirgreiðslu að fá.

Seðlabankanum var nýskeð bjargað frá gjaldþroti.

Vextirnir eru 18 prósent.

Skattahækkanir hafa þegar verið ákveðnar og flestum ber saman um að frekari hækkanir séu óhjákvæmilegar.

Fyrirtækin í landinu eru á heljarþröm.

Og heimilin eru í vandræðum með að greiða af skuldum sínum, hvort sem það eru rammíslensk verðtryggð lán sem hækka stöðugt eða lán í erlendri mynt.

Gjaldmiðillinn hefur fallið meira en eru dæmi til í þróuðu vestrænu ríki.

Hlutabréfamarkaðurinn íslenski hefur þurrkast út.

Fjöldi fólks hefur tapað sparnaði sínum.

Sem heild er Ísland orðið skuldugasta land í  heimi. Líka ríkissjóðurinn sem átti að vera skuldlaus þar til fyrir skemmstu.

Ísland er á alþjóðavettvangi orðið samnefnari fyrir fjármálaóreiðu, tákn fyrir efnahagshrun.

Við erum í sérstakri sjúkrameðferð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Þetta virkar eins og hrikaleg sjálfsblekking hjá Geir. Eða er hún ætluð til heimabrúks í Sjálfstæðisflokknum?

Þetta speglar reyndar veikleika Geirs sem stjórnmálamanns eins og þeir hafa birst manni síðustu mánuði. Hvað hann á erfitt með að tala hreinskilnislega, já, hvað honum er gjarnt að hengja sig í þann hálfsannleika sem hentar honum þá stundina.

Jafnvel þótt þveröfugt reynist rétt daginn eftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu