fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Kaupþing með Al-Thani í Hollywood?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 29. janúar 2009 19:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Þórisson sendi mér þessa grein. Hann hefur áður ritað greinar hér á vefinn eins og kemur fram í greinarlok.

— — —

Kaupþingsmenn höfðu metnað á öllum sviðum viðskiptalífsins og hugsuðu stórt.  Eins og fram hefur komið í fréttum var bankinn óþreytandi í uppbyggingu tengsla um allan heim, ekki síst í Austurlöndum. Meðal þess sem bankinn vildi setja mark sitt á var þróun og fjármögnun stórra fasteignaverkefna. Bankinn hafði m.a. áform um stofnun 70 milljarða fasteignaþróunarsjóðs en fallið var frá þeirri hugmynd um mitt ár 2008, eins og greint er frá í þessar frétt Viðskiptablaðsins: www.vb.is/frett/1/43367/. en þar kemur fram að Kaupþing hafi haft áform um þátttöku í risavöxnu verkefni í Kína. Bankinn var þá þegar hluthafi í ýmsum fasteignaverkefnum, m.a. með bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz,  en Róbert hefur verið í fréttum hér vegna umfangsmikilla viðskipta sinna við Kaupþing á síðustu dögum bankans.

Það er fróðlegt að skoða tengls Kaupþings við Tchenguiz bræður og fleiri öfluga þátttakendur í hinu mikla matadorspili fasteignaviðskipta þar sem milljarðarnir rúlla í gegnum fyrirtæki með aðsetur í skattaskjólum og þátttöku olíusjóða sem eiga uppruna sinn í austurlöndum, m.a Katar. En svo virðist sem upphaf og endir margra þráða í viðskiptum Kaupþings sé við Persaflóa!

En fyrst smá ættfræði;
Tchenguiz bræður eru komnir af írökskum gyðingaættum.  Faðirinn, Victor Tchenguiz, flýði Írak 1948 og settist að í Tehran í Íran. Nafnið Tchenguiz mun vera persnesk útgáfa af nafninu Genghs Khan, en gamans má geta þess að í grein Wikipedia um Dorrit Moussaieff kemur fram, að talið sé að Moussaieff fjölskyldan hafi ofið klæði í skikkju Genghis Khan sjálfs!
http://en.wikipedia.org/wiki/Dorrit_Moussaieff.

Í Tehran auðgaðist Tchenguiz fjölskyldan á fasteignaviðskiptum og komst í innsta valdahring Mohammad Rezā Shāh Pahlavi, keisara Íran.  Victor Tchenguiz var meðal annars yfirmaður myntsláttu keisarans og “royal jeweler”.Þegar Khomeini erkiklerkur tók völdin í Íran, flúði Tchenguiz fjölskyldan til London, en þangað tókst að koma nær öllum auðæfum fjölskyldunnar.

Tchenguiz bræður (f. 1959 og 1960) hófu feril sinn í fasteignaviðskiptum 1983 og voru, áður en kreppan hófst, meðal stærstu “fjárfesta” í Bretlandi, m.a. í krám, bensínstöðvum og fasteignum. Fasteignafélagið Rotch Property Group var upphaflega í sameign þeirra bræðra en var síðan skipt upp í tvö sjálfstæð félög.

Samkvæmt Gulf States Newsletter 2007 eru Tchenguiz bræður vel tengdir í heimi hinna ofurríku og frægu. Meðal vina sinna telja þeir Dorrit Moussaieff, forsteafrú, en frá þessu er greint á vefsíðunni “American Diamonds are forever” (!). (http://www.shopadf.com/industry_news/show/1114) þar sem má finna grein um heimsókn blaðamanns á Bessastaði.

Þótt Tchenguiz bræður séu vel efnaðir eru öll fasteignaverkefni þeirra fjármögnuð í gegnum banka og fjárfestingasjóði, og ekki alltaf ljóst hvernig eignarhaldi er háttað.

Meðal samstarfsaðila þeirra bræðra má nefna Kaupþing, en einnig er samstarf bræðranna við aðila í Líbýu og Katar vel þekkt. Meðal annars er fyrirtæki Vincent Tchenguiz, Consensus Business Group (CBG) í samvinnu við Líbýumenn um fjárfestingarsjóð sem Tchenguiz segir að sé “gríðarlega öflugur”, en samstarf Tchenguiz við Líbýumenn í gegnum CBG hófst síðla árs 2007.

Tchenguiz er einnig í samvinnu við Katarmenn, en yfirvöld þar hafa yfir að ráða öflugum sjóði, Qatar Investment Authority (QIA) , sem hefur svipað hlutverk og olíusjóður Norðmanna.  QIA, sem heyrir beint undir Sheikh Hamad bin Jassim bin Jabr al Thani, forsætisráðherra Katar, var settur á laggirnar árið 2000. Stofnfé sjóðsins var upphaflega um 40 milljarðar dollara en talið er að í dag sé sú upphæð orðin um 60 – 75 milljarðar dollara. QIA á m.a. ríflega 20 % í London Stock Exchange og stóran hlut í svissneska bankanum Credit Suisse. Í gegnum fyrirtæki sem kallast Delta Two á QIA 17% í verslunarkeðjunni Sainsbury’s. Þá hefur QIA stofnað fjárfestingasjóði bæði í Finnlandi og Malaysíu með um 1 milljarð dollara í stofnfé. Frekari upplýsingar um QIA og ýmislegt annað varðandi Katar er að finna t.d. hér:
http://www.explore-qatar.com/archives/all_qatar_today_articles/archive-200.htm

Tchenguiz bræður hófu samstaf við QIA árið 2003 um fjárfestingar í fasteignaverkefnum í London .

Qatar Investment Authority hefur mörg andlit –og eitt þeirra er ímynd hinna bresku Candy bræðra.

Fram á þetta ár ráku Candy bræður öflugt hönnunar-, fjárfestinga- og fasteignafyrirtæki í London og hafa þar verið í samstarfi við QIA um byggingarsvæði í London. Þetta er svæði sem kallast “Chelsea Barracks” þar sem fyrirhugað er að reisa lúxusíbúðir.

Þegar breska varnarmálaráðuneytið bauð svæðið til sölu, eignuðust Candy bræður það í gegnum fyrirtæki sitt Project Blue, sem er til heimilis á Guernsey, og Katarmönnum, sem taka þátt í verkefninu í gegnum fyrirtæki sem heitir Qatari Diar Real Estate og á 2/3 hluta verkefnisins. Kaupverði var 950 milljónir punda, sem er fjórum sinnum hærri upphæð er upp var sett. Síðastliðið haust, þegar kreppan skall á, kom upp ágreiningur milli Candy bræðra og Sheikh Hamad bin Jaber Jasim al-Thani forsætisráðherra Katar um þróun verksins og er talið að Katarmenn hafi yfirtekið hlut Candy bræðra í verkefninu.

Önnur viðskipti Candy bærðra og Katarmanna hafa vakið athygli í gegnum tíðina. Dagblaðið Times greinir m.a. frá því árið 2007 að bræðurnir séu í rannsókn hjá breskum skattayfirvöldum og að sú rannsókn hafi staðið í tvö ár. Meðal viðskipta sem þessi rannsókn náði til, voru fasteignakaup í samvinnu við Sheikh Hamad bin Jassim bin Jabr al-Thani, sem fjármögnuð voru af dótturfyrirtæki Kaupþings, Singer & Friedlander bankanum.

Leiðir þessara aðila, Candy bærðra, al-Thani og Kaupþings liggja saman á ólíklegustu stöðum. Þess er skemmst að minnast að skömmu áður en Kaupþing fór í þrot s.l. haust bárust fréttir af að mjög stórt lán Kaupþings vegna fasteignaviðskipta í Bandaríkjunum væri komið á gjalddaga.  Þarna var um að ræða lán uppá 23 milljarða króna, sem var hlutur Kaupþings í dílnum.

Sjá frétt Eyjunnar um þetta hér:
http://eyjan.is/blog/2008/10/02/telegraph-kaupthing-gaeti-stefnt-dyru-fasteignaverkefni-i-beverly-hills-i-ovissu/

Þessi viðskipti snúast um kaup Candy bræðra á umfangsmiklu byggingarsvæði á besta stað í Hollywood, nánar tiltekið á Wilshire Boulevard, í hinu fræga póstnúmeri 90210 í Beverly Hills. Þegar kaupin fóru fram, um mitt ár 2007, var verðið, 500 milljónir dollara, hið hæsta sem greitt hafði verið á fasteignamarkaði í Kaliforníu.

Þessi viðskipti vöktu töluverða athygli í Hollywood á sínum tíma. Á þessu svæði búa margir gyðingar og þegar fréttir bárust af því að líklega væri Sheikh Hamad bin Jassim bin Jaber al-Thani aðili að þessum viðskiptum varð allt vitlaust í bænum. Fulltrúar bæjarráðs kröfðust þess að Candy bræður gerðu grein fyrir því hverjir stæðu í raun að fjármögnun verksins og töldu af og frá að íbúar myndu sætta sig við aðkomu al – Thani,  sem þeir saka um gyðingahatur og fjármögnun öfgahópa.

Candy bræður tóku þessar hótanir alvarlega og héldu fundi um málið með Jimmy Delshad, sem þá var borgarstjóri í Hollywood. Markmiðið var að sannfæra íbúa og bæjarstjórn um að það væri einungis þeirra eigið fyrirtæki, ásamt Kaupþingi, sem stæði að verkefninu. Þá sendu bræðurnir út bréf til nágranna við Wilshire Bouleveard til þess að útskýra sinn málstað.

Þetta lét Nick Candy hafa eftir sér um málið í breska blaðinu Independent:
„We sent 9,000 letters to the people of Beverly Hills and have had 18 meetings with the planners. And I can tell you 200 per cent that Sheikh Hamad is not involved in this project. But having said that I think people can be very narrow-minded on this. I know [the sheikh] is a friend of America who is close to the American President and Arnold Schwarzenegger [the Governor of California]. The US Air Force even has a base in Qatar. We love the people of Beverly Hills but I think it’s fair to say that this has been a lot harder than we thought.“

Akkúrat.

Þann 14. október birti Evening Standard frétt um samskipti Candy bræðra og Kaupþings þar sem fram kom að Candy bræður hefðu sagt upp öllum samningum við Kaupþing vegna vanefnda. Í framhaldinu tók CPC, fyrirtæki þeirra bræðra, bæði samstarfsverkefni þeirra og Kaupþings í London (verkefni sem kallast NoHo Square – sem gárungarnir kalla nú NoHope Square) og Hollywood yfir.

Í Evening Standard er haft eftir Mike Samuels, yfirmanni fasteignaverkefna Kaupþings í Bretlandi að bankinn ætti enn 60% í þessum verkefnum og það hefði ekki breyst við þjóðnýtingu bankans.

Á móti krafðist CPC réttar til þess að yfirtaka verkefnin en heildarverðmæti þeirra var 425 m pund, á verulegum afslætti með vísan til stöðu markaðarins. Í frétt blaðsins er þess getið að 209 m punda lán frá Credit Suisse vegna verkefnisins í Hollywood sé einnig á gjalddaga.

Þessi frétt er skrifuð í október s.l. Síðan hefur hallað verulega undan fæti fyrir Candy bræður ekki síður en Tchenguiz bræður og óljóst hver staða þessara fyrrum mógúla er í dag.

Ekki hefur Kaupþing gengið betur, en furðulega litlar fregnir hafa borist hingað af þeim mikla fjölda verkefna og eigna sem Kaupþing hefur verið með puttana í meðan allt gekk vel.

Það væri fróðlegt að fá upplýsingar um það hvað orðið hefur af þessum eignum og skuldbindingum Kaupþings erlendis, t.d. ofangreindum verkefnum, í Hollywood og London.

Á Kaupþing enn hluti í þessum verkefnum? Ef svo er, hvers virði er hann þá nú?

Er það rétt að al-Thani fjölskyldan eigi hlut í Wilshire Boulevard verkefninu í gegnum Kaupþing, eða er þetta enn ein “kjaftasagan” af bankanum?

Fyrri pistlar um Kaupþing og tengslanet bankans má finna hér:
http://silfuregils.eyjan.is/2008/11/28/gaddafi-ad-baki-sigurdar/
http://silfuregils.eyjan.is/2008/12/09/hvad-er-ad-gerast-med-kaupthing-i-luxemborg/
http://silfuregils.eyjan.is/2008/12/12/bankar-og-orkuutras-follow-the-money/

image001.jpg

Loftmynd (tölvugrafík) af 9900 Wilshire, Beverly Hills 9210 –fyrirhugaðar byggingar eru hannaðar af Richard Meier.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu