fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Almenningur fékk að blæða

Egill Helgason
Þriðjudaginn 27. janúar 2009 21:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Einarsson talar í bréfi um atlögu sem hafi fellt íslenska kerfið.

Á sama tíma birtast upplýsingar um geðveikisleg lán Kaupþings til vildarvina.

Um ótrúlega fjármagnsflutninga úr bankanum. Um furðulegar – og líklega ólöglegar – æfingar við að halda uppi gengi á bréfum í bankanum.

Ekki mátti gengið lækka, því þá var hætta á að öll spilaborgin sem stjórnendur bankans höfðu sett upp hryndi.

Enn á svo eftir að skýra betur atlögu bankastjórnenda og eigenda bankanna að krónunni. Samkvæmt mínum heimildum reið Kaupþing á vaðið og voru stöðutökur eigenda eins og Ólafs Ólafssonar og Existabræðra feiknarlega stórar. Hefði einn aðili gert þetta – upp á sitt einsdæmi – hefðu það getað talist eðlileg viðskipti.

En þegar um samantekin ráð er að ræða þá er grunur um lögbrot.

Landsbankinn fylgdi síðar í kjölfarið og félög í eigu Björgólfsfeðga.

Af einhverjum ástæðum virðist Glitnir hafa setið hjá. Heimildir mínar segja að sá banki hafi ekki verið mjög virkur í gjaldeyrisbraskinu. En fjárhagur Glitnis var skelfilega bágur og engin leið til að bjarga bankanum frá þroti.

Þetta fegraði efnahagsreikninga bankanna mjög um tíma. Sumir erlendir greinendur féllu í gildruna og furðuðu sig á því hvað þeir stóðu vel þegar allt var á niðurleið annars staðar.

Svo kom í ljós að þetta var eins og að pissa í skóinn sinn. Krónan var kannski ekki merkilegur gjaldmiðill, en þetta gekk endanlega frá henni.

Sumir græddu vel á því – eða ætluðu að græða. Íslenskur almenningur fékk hins vegar að blæða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu