
Það bendir flest til þess að stjórnin sem tekur við starfi ekki nema nokkra mánuði, fram að kosningum í apríl eða byrjun maí.
Reyndar er ekkert sem segir að þurfi að boða til kosninga þá – að því tilskildu að mynduð verði starfhæf stjórn.
Nú munu hefjast vangaveltur um hverjir fái sæti í stjórninni; svo þykja ráðherraembætti spennandi að það telst eftirsókarvert að fá stól í svo skammlífri stjórn.
1979 til 1980 var við völd minnihlutastjórn Alþýðuflokksins um fjögurra mánaða skeið.
Góð verðlaun eru í boði fyrir þá sem muna hver var forsætisráðherra í þeirri stjórn.
(Dómsmálaráðherrann er reyndar sýnu eftirminnilegri.)
En talandi um dómsmálaráðherra þá er sagt í Orðinu á götunni að Lúðvík Bergvinsson fái það djobb í nýju stjórninni.
Eða er það misskilningur?