fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Kannski ekki einu sinni áhugavert?

Egill Helgason
Mánudaginn 26. janúar 2009 19:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú hefur það gerst sem sjaldan verður – mér er eiginlega orðs vant.

Kannski finnst mér sá pólitíski hráskinnsleikur sem nú fer fram ekki einu sinni áhugaverður?

Það hringdi í mig blaðamaður frá frægu erlendu riti. Ég sagði við hann að fögnuðurinn yfir falli stjórnarinnar væri muted.

Þetta væri engin bylting með tilheyrandi gleðilátum.

Ég heyrði tvo tiltölulega unga þingmenn úr Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki takast á í útvarpinu.

Eftir smástund slökkti ég. Hafi orðið stuttbuxnapólitík einhvern tíma átt við þá var það þarna.

Sú ríkisstjórn sem nú er fallin var ekki merkileg. Hennar verður ábyggilega minnst sem einnar af verstu ríkisstjórnum sem hefur setið á Íslandi.

Ég er ekki viss um að það sem tekur við verði betra, en það verður varla mikið verra heldur.

Stjórnin fellur  fyrst og fremst vegna ákvarðana sem ekki voru teknar. Ákvarðana sem hefði þurft að taka í október eða nóvember eða í síðasta lagi um áramót, en urðu óyfirstíganlegar eftir það.

Kremja nú stjórnina og forsætisráðherrann með þunga sínum.

Það eru miklir erfiðleikar framundan. Efnahagsástandið á eftir að versna til muna. Eins og Willem Buiter sagði í viðtali í Silfrinu fyrir viku þá ákvað ríkisstjórnin að fresta versta högginu um eitt ár. Hinn mikli niðurskurður á enn eftir að verða.

Enginn er öfundsverður að taka við stjórn landsins, en þeim mun mikilvægara að þeir njóti trausts og geti talað hreinskilnislega og af sæmilegum sannfæringarkrafti við fólkið í landinu.

Ekkert á síður við núna en gamaldags flokkastjórnmál með tilheyrandi stólaskiptum, hrossakaupum, baktjaldamakki  – og stöðluðum frösum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu