fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Samfylking og VG í vanda vegna skuldamálanna

Egill Helgason
Mánudaginn 2. desember 2013 09:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnarandstöðuflokkarnir eru í vandræðum vegna skuldaleiðréttingarinnar sem ríkisstjórnin boðaði á laugardaginn. Þeir – og þá einkum Samfylkingin – hafa dottið í þann gír að vera ósjálfrátt á móti. Það er erfið afstaða þegar um er að ræða mál sem snertir svo margt fólk.

Stuðningsmenn flokkanna viðurkenna núorðið að það hafi verið í skuldamálunum sem þeir klikkuðu. Það var ekki staðið við fyrirheitin um skjaldborgina.

Vissulega var gripið til ýmissa ráða, vaxtabætur voru hækkaðar, 110 prósenta leiðin gagnaðist sumum ágætlega – en tilfinningin var samt sú að flokkarnir hefðu svikið loforð sín. Og þeim var refsað grimmilega fyrir í kosningunum.

Nú er kominn fram þessi skuldapakki. Hann hefur sína kosti og galla. Það er erfitt að vera afdráttarlaust með eða á móti – þetta er jú ekki íþróttakeppni. En hann gagnast sumum vel – ég hef hitt talsvert af fólki sem býst við að fá nokkra leiðréttingu sinna mála og það eru fjárhæðir sem skipta máli.

Á móti eru uppi efasemdir um fjármögnunina og hvaða áhrif þetta hafi til dæmis á afnám gjaldeyrishafta. Það eru réttmætar athugasemdir.

En þetta er erfitt fyrir stjórnarandstöðuna. Hún veit upp á sig skömmina frá ríkisstjórnarárunum. Það er erfitt fyrir hana að gagnrýna að ekki sé meira gert, að því hafi verið lofað að pakkinn yrði stærri – ekki höfðu Samfylking og VG burði til að ráðast í svona aðgerðir. Flokkarnir létu bankana og lífeyrissjóðina hræða sig frá því.

Þannig getur stjórnarandstaðan varla verið á móti án þess að líta út fyrir að vera ósanngjörn og úr takti – en svo er líka hætt við að gagnrýni á leiðréttinguna komi út eins og sé verið að taka stöðu með erlendum kröfuhöfum. Það þykir ekki gott í stjórmálum dagsins í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð