fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Stóri dagurinn – og þá mest fyrir Framsókn

Egill Helgason
Föstudaginn 29. nóvember 2013 21:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stóri dagurinn er á morgun. Tilkynnt um niðurstöður í skuldamálum í Hörpu klukkan 4.

Fyrir Framsóknarflokkinn er þetta örlagadagur. Það má gera því skóna að framtíð flokksins ráðist á morgun. Fylgið hefur verið að rjátlast af honum síðan í kosningum, ef kjósendur telja að flokkurinn sé að skila sínu í skuldamálum má búast við að fylgið rjúki upp aftur.

Ef ekki, ef þetta verður talið ófullnægjandi, þá bíður flokksins stanslaus varnarbarátta – og jafnvel endalok setu í ríkisstjórn.

Og svo er náttúrlega hugsanlegt að andstæðingar Framsóknarflokksins óttist að þetta verði eitthvað.

Það hafa verið í gangi þungar samningaviðræður milli stjórnarflokkanna síðustu daga – það er ekki eins og tillögurnar hafi komið fullsmíðaðar úr skuldaniðurfellingarnefndinni. Hún var að miklu leyti skipuð trúnaðarmönnum Framsóknar.

Það þurfti líka að fá blessun Sjálfstæðisflokksins – þar á bæ ríkja miklar efasemdir í garð skuldaúrræða.

Nú bíðum við og sjáum hver niðurstaðan verður. Hvað verða beinar skuldaniðurfellingar, hvað verða tilfærslur eins og hugmyndir um að nýta séreignarlífeyrissparnað, hvað þetta verður mikið og hverjir njóta, hverjir eigi að borga eða hvaðan peningarnir eigi að koma?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi