fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Frekar skammtímalausnir en kerfisbreytingar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 28. nóvember 2013 12:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki ofsagt hjá Lars Christensen um skammtímasjónarmiðin í íslenskri pólitík.

Við Íslendingar erum reyndar furðulega miklir kerfisþrælar; við komum okkur upp stórum og miklum kerfum sem við erum algjörlega ófær um að breyta – jafnvel þótt þörfin blasi við. Dæmin eru mýmörg.

En svo reynum við alltaf að stytta okkur leið þegar við getum, fremur en að reyna að breyta kerfunum. Með því að hrúga upp virkjun og álveri, með því að efna til allsherjarveislu í kringum alltof hátt verðlagðan gjaldmiðil. Þannig er hægt að reyna að keyra upp hagvöxt tímabundið, hafa smá partí, og sjá – stjórnmálamenn ná kannski endurkjöri.

Nú er talað um það í tengslun við boðaðar aðgerðir í skuldamálum að þær muni efla neyslu og hagvöxt. Það má vera, til einhvers tíma. Líklegt er þá að verðbólga fari af stað og komi aftur í hausinn á okkur í gegnum tvö kerfi sem hafa vaxið okkur yfir höfuð – verðtrygginguna og íslensku krónuna.

Raunar hefur ein stærsta frétt vikunnar farið heldur fljótt. Hún segir frá tekjubresti ríkissjóðs vegna þess að hagvöxtur er ekki eins og ætlað var. Ríkið er semsagt að fá minni tekjur – hjól atvinnulífsins eru ekki að snúast þrátt fyrir makríl og ferðamenn.

Það er semsagt kreppulykt á Íslandi ennþá.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“