Fáum stjórnmálaöflum virðist liggja jafn lítið á hjarta og Bjartri framtíð. Þó er greint frá tveimur frumvörpum sem koma frá flokknum, annað snýst um að seinka klukkunni á Íslandi og hitt um að leggja niður mannanafnanefnd.
Bæði málin eru að mestu leyti ópólitísk – enda virkar Björt framtíð sem afar ópólitískur flokkur – og bæði eru ágætlega fallin til vinsælda.
Það er ágætt að hafa aðeins meiri birtu á morgnana og voða margir virðast vera sammála um að mannanafnanefnd sé sérsaklega vond.
Við lifum á tímum einstaklingsfrelsis, að minnsta kosti í sýnd, og þá á fólki líklega að vera í sjálfsvald sett hvort það gefur börnum sín ónefni.
Og á sama tíma mætti kannski huga að öðru ófrelsi sem þrífst í nafni málverndar – nefnilega því að við erum bundin í hina íslensku nafnahefð og óheimilt að taka upp ættarnöfn?