fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Sjálfstæðisflokkurinn – íhald og frjálslyndir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 19. nóvember 2013 12:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir ætlar ekki að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum. Það kemur ekki sérlega mikið á óvart eftir útkomu hennar í prófkjörinu á laugardag.

Það er hins vegar missir fyrir flokkinn að Þorbjörg sé ekki á listanum, hún er frjálslynd stjórnmálakona sem höfðar til margra sem hrífast kannski ekki endilega af körlunum þremur sem leiða listann.

Sjálfstæðisflokkurinn er raunar sérlega ósamstæður um þessar mundir. Í upphafi var hann stofnaður upp úr Íhaldsflokknum og Frjálslynda flokknum – ef til vill má segja að þær meginlínur einkenni flokkinn nú.

Íhaldsmennirnir hafa verið ofan á – hinir frjálslyndu eru lúpulegir og láta lítt að sér kveða. Það er helst að þeir huggi sig við Kögunarhól Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu.

Það flækir svo málin hversu mikil ítök ritstjóri Morgunblaðsins hefur í hugum flokkmanna. Þeir lesa leiðara Morgunblaðins á hverjum degi. Forysta flokksins óttast hann og ekki að ástæðulausu. Hann fór illa með hana í Icesavemálinu.

Halldór Halldórsson, sveitarstjórnarmaðurinn margreyndi, sem sigraði í prófkjörinu fær heldur kaldar kveðjur úr Hádegismóum. Það er beinlínis hraunað yfir Halldór enda hefur hann afstöðu sem gengur glæpi næst á þeim bæ:

„Frambjóðandinn sem hlaut efsta sætið í prófkjörinu, með mjög ósannfærandi útkomu, kemur úr hópi áköfustu áhugamanna um að koma Íslandi í ESB, hvað sem tautar og raular. Sá hópur er mjög fámennur í Sjálfstæðisflokknum. Prófkjörið er því flokknum gagnslítið, eins og fyrr sagði.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð