fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Stefán lögreglustjóri: Minnkandi glæpir

Egill Helgason
Sunnudaginn 17. nóvember 2013 19:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu, skrifar grein í nýjasta tölublað Kjarnans þar sem hann skýrir frá því að afbrotum fari mjög fækkandi. Greinin nefnist Dularfulla glæpahvarfið.

Stefán segir að þetta eigi við um þjófnaði, innbrot, eignaspjöll og ofbeldi, en það hafi ekki vakið sérstaka athygli hjá fjölmiðlum. Kannski, eins og sagt er, er það ekki frétt ef hundurinn geltir ekki.

Stefán staðhæfir að tölurnar gefi rétta mynd og líka að þær haldist í hendur við alþjóðlega þróun. Síðla sumars hafi verið fjallað um hana í The Economist undir yfirskriftinni The Curious Case of the Fall in Crime.

Það eru uppi ýmsar kenningar um hvers vegna þetta hefur gerst, til dæmis á svið félagsfræði og forvarna. Stefán nefnir betri og markvissari löggæslu og hluti eins og að vímuefnaneysla ungmenna hefur minnkað, útbreidda fordæmingu á heimilisofbeldi og betri þjófavarnir.

Stefán nefnir þó að kynferðisbrotum hafi ekki fækkað sem og vasaþjóðfnuðum – það er rakið til þess að fólk gengur um með dýr símtæki sem er gjarnan stolið.

Það kemur svo fram hjá Stefáni, eins og í greininni í Economist, að þyngri refsingar hafi ekki áhrif í þessu samhengi og séu fremur til óþurftar en hitt.

ImageHandler

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð