Geert Wilders og Marina Le Pen ætla sér að koma upp bandalagi flokka í ysta hægrinu fyrir kosningarnar til Evrópuþingsins á næsta ári. Markmiðið er að eyðileggja Evrópusambandið innan í frá.
Flokkar þeirra, hinn hollenski Frelsisflokkur Wilders og Þjóðfylking Le Pen í Frakklandi, njóta mikils fylgis í skoðanakönnunum og þau vilja fá með flokka eins og Svíþjóðardemókratana, Sanna Finna og Þjóðarflokkinn í Danmörku.
En það er reyndar ýmislegt sem skilur þau að – sem og aðra öfgahægriflokka Evrópu. Wilders og Le Pen vilja ekki hafa með Jobbik í Ungverjalandi og Gyllta dögun í Grikklandi, þessir flokkar nálgast það að vera hreinir nasistar.
Ukip í Bretlandi vill ekki vera með, foringi þess flokks, Nigel Farage, hefur ekki jafn afdráttarlausa afstöðu gegn innflytjendum og Wilders og Le Pen og að auki óttast hann tilhneigingu til antisemítisma sem er að finna í Þjóðfylkingunni frönsku.
Wilders er mikill Ísraelsvinur en að sama skapi hatast hann við múslima. Hann vill ganga svo langt að banna Kóraninn. Í aðra röndina er hann hins vegar innan hollenskrar frjálsræðishefðar, til dæmis gagnvart samkynhneigðum. Þar byggir Þjóðfylkingin hins vegar á mjög íhaldssömum kaþólskum gildum og er alfarið á móti hjónaböndum samkynhneigðra.
En Wilders og Le Pen stefna hátt. Þau vonast til að flokkar sem ganga í bandalag þeirra nái allt að 30 prósentum sæta á Evrópuþinginu og geti þannig lamað starfsemi þess. Þrátt fyrir ýmislegan ágreining er það stóri óvinurinn, ESB, sem sameinar þau.
Marine Le Pen og Geert Wilders: Bandalag hægriöfgaflokka gegn Evrópusambandinu.