Mann setur hljóðan þegar maður heyrir af 19 ára stúlkum sem eru dæmdar í sjö ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl í Tékklandi.
Ég vitna í mikinn vísdómsmann, Pétur Þorsteinsson, fyrrverandi skólastjóra á Kópaskeri. Hann hefur lengi talað fyrir öðruvísi afstöðu til fíkniefnavarna sem ekki er byggð á því að refsa ungu fólki grimmúðlega – Pétur skrifar á Facebook:
„Úreltir alþjóðasamningar, úrelt lagasetning, huglausir stjórnmálamenn, gráðugir fjölmiðlar, vanþekking, grimmd og rangsnúin mannúð – þegar allt þetta fer saman er voðinn vís. Útskúfunar- og refsihyggjan verður að víkja fyrir nýjum leiðum í fíknivörnum.“