Í dag voru afhent verðlaun fyrir tillögu um útisundlaug við Sundhöllina í Reykjavík.
Þetta á nokkra forsögu, eins og Gunnar Smári Egilsson fjallar um á Facebook. Hann rifjar upp að Bolli Kristinsson hafi á sínum tíma hvatt til slíkrar byggingar og látið gera teikningu af húsi sem yrði einhvers konar framhald af byggingunni sem er eftir Guðjón Samúelsson.
Þetta leit svona út, er eins og í beinu framhaldi af Sundhöllinni. En sumir myndu kannski segja að þetta sé stórt og klossað.
Hér má svo sjá verðlaunateikninguna. Hana má skoða nánar á þessum vef. Þetta er í nútímalegum stíl, yfirbragðið fremur létt, en hvernig kemur þetta út í samræmi við gömlu bygginguna sem er frá 1937?