fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Að sameina menningarstofnanir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 12. nóvember 2013 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ýmislegt í tillögum hagræðingarnefndar sem er þess virði að skoða.

Sumt er reyndar svo almennt orðað að það nær því ekki einu sinni að vera fyrsta skref í hagræðingarátt eins og þegar rætt er um að að fækka háskólum eða auka samstarf milli þeirra.

En svo eru tillögur sem eru mun sértækari en skila kannski allar mikilli hagræðingu.

Þannig er til dæmis með tillöguna um að sameina yfirstjórn Þjóðleikhússins, Sinfóníuhjómsveitarinnar, Íslenska dansflokksins og Íslensku óperunnar.

Nú held ég að megi fullyrða að í þessum menningarstofnunum sé engin óskapleg yfirbygging og heldur ekki greidd nein ofurlaun. Sinfónían ætti að fá að standa ein og sér, Dansflokkurinn var á árum áður innan Þjóðleikhússins og hugsanlega er fullt vit í því að innlima Óperuna í Þjóðleikhúsið. Þótt Harpa sé glæsileg bygging hentar hún ekki til óperuflutnings nema stöku sinnum – Harpa er tónleikahús ekki leikhús.

Þjóðleikhúsið er hins vegar afar falleg umgjörð utan um óperur – enda voru óperur fluttar þar á árum áður. Þar er hljómsveitargryfja og hljómburðurinn alveg fullnægjandi.

Ein rökin sem hafa verið notuð með því að Óperan sé í Hörpu eru þau að þar rúmist svo margir áhorfendur að minna þurfi að greiða með hverri sýningu. En það er í raun frekar dapurt ef Óperan situr uppi með að þurfa að fylla 1800 manna sal á hverri sýningu, í raun hlýtur það að virka eins og listrænn hemill á starfsemina.

Hvað sem líður fjárhagshliðinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð