Vísir birtir frétt um konu sem ætlaði að kaupa þrjá miða í innanlandsflugi fram og til baka milli Þórshafnar og Reykjavíkur, en hætti við sökum þess hversu miðarnir voru dýrir. Samanlagt áttu þeir að kosta 157.300. Semsagt rúmlega 50 þúsund krónur á mann, rúmlega 300 evrur.
Fólki er brugðið og finnst þetta dýrt – sem það er.
En þetta er langt í frá að vera eitthvað sér-íslenskt.
Víða í heiminum er það orðið svo að dýrara er að fljúga innanlands en milli landa. Í millilandaflugi er samkeppni, þar starfa lágfargjaldaflugvélög – verð á flugmiðum milli landa hafa lækkað meðan til dæmis verð á hótelgistingu hefur almennt farið hækkandi.
En slíkt hefur ekki gerst í flugi innanlands, þar er sjaldnast samkeppni að nokkru nemi. Það er erfitt að koma henni við á fáförnum flugleiðum. Önnur leið er að stórauka opinber framlög til innanlandsflugsins – en fyrir því er varla mikill hjómgrunnur.