fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Ríkisstjórnarminningar Össurar

Egill Helgason
Laugardaginn 2. nóvember 2013 20:21

Össur Skarphéðinsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ýmislegt sem vekur forvitni í endurminningum Össurar Skarphéðinssonar frá árunum í síðustu ríkisstjórn. Það er betra að fá frásagnir um stjórnartíma ríkisstjórna meðan einhver hefur áhuga – sé það dregið of lengi er hætt við að áhuginn hafi farið mjög dvínandi.

Nú tek ég fram að ég hef ekki séð þessa bók, einungis lesið það sem er sagt frá í fjölmiðlum um hana.

Á Pressunni sé ég að í bókinni standi að Jóhanna og Steingrímur hafi haft í hótunum við Össur og Ögmund um stjórnarslit ef þeir greiddu ekki atkvæði á móti tillögu um að landsdómskærunni á hendur Geir Haarde yrði felld niður. Landsdómsmálið er ljótur blettur á þeim sem að því stóðu. Jóhanna greiddi atkvæði á móti því að Geir yrði dreginn fyrir landsdóm, en síðan greiddi hún atkvæði með því að tillögunni um afturköllun landsdómsákærunnar yrði vísað frá.

Hvað sem því líður er illt til þess að hugsa að baktjaldamakk hafi verið í gangi vegna landsdómsins. Össur segir að þá hafi allt logað innan ríkisstjórnarliðsins.

Svo er merkilegt að lesa eins og segir frá í Fréttablaðinu að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi notað ríkisráðsfundi til að skamma ríkisstjórnina og vera í andstöðu við hluti eins og breytingar á Stjórnarráðinu og stjórnarskrárfrumvarpið. Það hefur heldur betur andað köldu milli hans og Jóhönnu og Steingríms.

Hvernig ætli andrúmsloftið verði á ríkisráðsfundum þessa kjörtímabils?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð