Fyrir utan brotthvarf Jóns Gnarr, er nú mest rætt um misvísandi yfirlýsingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar varðandi erlenda kröfuhafa.
Sigmundur sagði í viðtali við Reuters í gær að samningarnir tækju nokkur ár. Bjarni Benediktsson sagði fyrir stuttu að hann vonaðist til að hægt yrði að ljúka samningunum næsta vor.
Menn velta fyrir sér hvernig standi á þessu misræmi.
Ein skýringin er sú að milli forsætisráðherrans og fjármálaráðherrans, leiðtoga ríkisstjórnarinnar, er ekki sérlega náið samband. Þannig er þessi ríkisstjórn ólík þeim sem komu næst á undan. Menn þykjast líka greina að milli forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins sé togstreita um hver eigi að fara með þessi mál.
Annar ásteytingarsteinn eru auðvitað kosningaloforð Sigmundar Davíðs um skuldaniðurfellingar. Þær hafa verið tengdar því að samið sé við kröfuhafana og fjármagni sem gengur af sé varið í skuldalækkun. Í nóvember er sagt að von sé á áliti hóps um skuldamálin sem er undir stjórn Sigurðar Hannessonar, sérstaks trúnaðarmanns forsætisráðherra. Það er spurning hvort eitthvað óvænt komi úr vinnu þessa hóps, en það er ljóst að Sjálfstæðismenn munu til dæmis ekki fallast á það sem er kallað „magnbundin íhlutun“.
Ef skuldaniðurfelling er ekki að ganga jafn hratt og lofað var, er auðvitað alltaf hægt að kenna erlendum kröfuhöfum um.
Staðan í pólitíkinni gerir málið ekki einfaldara. Fylgið hrynur nú af Framsóknarflokknum en Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu. Ef fylgi Framsóknar fer neðar verður ekki auðvelt fyrir flokkinn að leiða ríkisstjórn. Ef Framsóknarflokknum tekst ekki að standa við kosningaloforðin, er kannski betra fyrir flokkinn að hverfa einfaldlega úr stjórninni.
Framsóknarflokkurinn raunar meðvitaður um þetta. Ein ástæða þess að Gunnar Bragi Sveinsson keyrir svo hart á Evrópumálin er sú að meðan ennþá er opið fyrir ESB-umsókn gætu myndast gagnvegir milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar og Bjartrar framstíðar. Bjarna Benediktsson er ekkert að flýta sér að loka umsóknarferlinu. Hann hefur reyndar aldrei verið heitur, hvorki með eða á móti ESB, og það hentar honum ágætlega að hafa þetta opið. Framsóknarmenn vilja hins vegar loka glufunni sem fyrst.