fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Kínverjar og geimurinn

Egill Helgason
Mánudaginn 28. október 2013 08:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa spurt hví Kína hafi svo mikinn áhuga á Íslandi.

Aðalástæðan er líklega sú að Ísland hefur fasta setu í Norðurheimskautsráðinu. Þar höfum við nokkur áhrif á stað þar sem Kínverjar vilja komast að. Sambandið milli Kína og Noregs hefur verið lélegt eftir að Norðmenn veittu andófsmanninum Liu Xiaobo friðarverðlaun Nóbels.

Það sýndi reyndar að vinátta við Kínverja ristir kannski ekki djúpt – snýst fremur um hagsmuni.

Önnur ástæðan er sú að Íslendingar eru veikluð þjóð sem hefur gengið í gegnum mikla efnahagskreppu, er óviss um stöðu sína í heiminum – og hefur forseta sem geysilega vinveittur Kínverjum, miklu fremur en þjóðum sem eru nær okkur.

Í haust var mér reyndar bent á að eitt mögulegt langtímamarkmið sem Kínverjar gætu haft á Íslandi. Þar gæti verið ein skýringin á áhuga þeirra á afskekktum jörðum til sveita.

Kínverjar hafa komið sér upp miklu geimprógrami og gervihnöttum þeirra fer stöðugt fjölgandi. Gervihnettirnir gegna bæði hernaðarlegum og friðsömum tilgangi – en Bandaríkjamenn eru mjög tortryggnir í garð þessa, eins og lesa má í þessari frétt.

Kínverjar þurfa stöðvar á jörðu til að fylgjast með gervihnöttum sínum. Þeir hafa stöðvar í Kína, Pakistan, Namibíu og Kenýa, en miklar deilur hafa verið um stöð sem þeir hafa fengið að nota í Ástralíu. Sagt er að Kínverjar hafi notað hana til að fylgjast með bandarískum herskipum.

Ég segi eins og er að þetta eru einungis getgátur. En Kínverjar ætla sér stóra hluti í geimnum. Það var fullorðinn bandarískur maður sem hefur starfað lengi við að fylgjast með gervihnöttum sem beti mér á að ein ástæðan fyrir áhuga Kínverja á Íslandi væri að koma upp slíkri stöð hérna í framtíðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð