Það er eins og ég skrifaði í grein í morgun, það virðist sem flugvallarmálið hafi verið aftengt þannig að það mun ekki tröllríða borgarstjórnarkosningunum.
Til að kynna samkomulag um flugvöllinn mættu sjálfur forsætisráðherra, innanríkisráðherra og borgarstjóri. Líka forstjóri Icelandair Group – sem gefur þessu talsvert mikið vægi.
Svo er skipuð nefnd undir forystu Rögnu Árnadóttur til að leita að sátt í málinu.
Þetta er auðvita ekki annað en frestur – en allir aðilar samþykkja að aðhafast ekki að sinni.
En málið er úti úr myndinni hvað varðar kosningarnar í vor, þeir sem ætluðu að gera út á flugvallarmálið í kosningunum þurfa að leita að einhverju öðru. Og nú er hægt að einbeita sér að öðrum málum sem brenna kannski meira á borgarbúum.