Á tíma trúleysis gerast menn mjög stórhuga í byggingu trúar- og tilbeiðsluhúsa.
Moska rís líklega í Sogamýri með turni sem – jæja, hann mun varla gnæfa mikið yfir byggðina -, hugmyndir eru uppi um risastóra miðalda-tilgátu-dómkirkju í Skálholti og við Mýrargötu hyggst rússneska rétttrúnaðarkirkjan byggja kirkju með turnun sem eru eins og næpur í laginu og gylltum spírum.
Íbúar þar mótmæla og finnst húsið vera og stórt og alveg úr stíl við byggðina – það er reyndar spurning hvort það verður svo mikið út úr kú að það verði beinlínis til prýði.
Líklega hefur meðlimum rétttrúnaðarkirkjunnar fjölgað nokkuð á Íslandi síðustu árin, en nú er hún bara í litlu húsi við Öldugötuna.
Þetta gerist á sama tíma og sumir lútersk-evangelískir söfnuðir eiga í vandræðum og allt logar í átökum í Krossinum, því fyrrum öfluga trúfélagi. Langholtskirkja er á hausnum og spurning hvort mætti bjóða einhverjum söfnuðinum hana til kaups. Það er hefð fyrir því víða erlendis að breyta kirkjum í moskur – og öfugt – og svo mætti líka með lagni setja á hana spírur í anda kirkjubygginga orþódox Rússa.
Svona gæti rússnesk rétttrúnaðarkirkja við Mýrargötuna litið út.