Í Kiljunni í kvöld förum við alla leið í Norðurfjörð á Ströndum, en þar hefur Vigdís Grímsdóttir vetursetu. Við skoðum staðinn með henni og spjöllum um nýja bók eftir hana, skáldævisögu sem nefnist Dísusaga.
Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur hefur tekið saman efni í stóra bók í tveimur bindum, sem nefnast Íslensk vatnabók og Stangveiðar á Íslandi. Við hittum Sölva á bökkum þekktrar laxveiðiár. Í bókinni er meðal annars rakin saga veiða í vötnum og ám, allt frá tíma Hrafna-Flóka.
Bjarni Hinriksson segir frá nýrri bók eftir sig sem nefnist Skugginn af sjálfum mér. Þetta er grafísk skáldsaga, með myndum og texta eftir Bjarna.
Vigdís Esradóttir, hótelhaldari á Laugahóli í Bjarnarfirði, segir frá uppáhaldsbókum sínum.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um tvær bækur: Alla mína stelpuspilatíð eftir Sigríði Þorgrímsdóttur og Vince Vaughn í skýjunum eftir Halldór Armand Ásgeirsson.
Bragi segir frá lífi í Flatey.