Bókavertíðin er að hefjast – það er tilhlökkunarefni.
Vigdís Grímsdóttir er með skáldaævisögu, nokkuð óvenjulega þó; Sjón skrifar um ungan homma á tíma spænsku veikinnar 1918; Guðmundur Andri skrifar um Gröndal; Jón Kalman er með nútímasögu sem gerist meðal annars í Keflavík.
En útgáfan er nokkuð minni en var í fyrra. Þá var líka sprenging í útgáfu íslenskra skáldsagna, það var eiginlega of mikið. Margir góðir höfundar voru sárir og gramir á eftir – bækur þeirra komust varla að vegna fjölda útgefinna titla.
Þetta er vonandi í meira jafnvægi í ár. Og eins og segir, þá eru ýmsar spennandi bækur að koma út.
Sjón skrifar um ungan homma á tíma spænsku veikinnar 1918. Sögusviðið er Reykjavík, ekki síst kvikmyndahúsin í bænum.