Eiginlega finnst manni ekki hægt að taka mark á kvörtunum um mannaflaskort hjá lögreglunni ef hún getur teflt fram á sjötta tug lögreglumanna til að eiga við nokkra mótmælendur í Gálgahrauni.
Á sjötta tug – það er semsagt meira en fimmtíu. Mikið lögreglulið.
Og stóðu svo í því að handtaka fólk fjörutíu sinnum.
Það skiptir svosem ekki máli hvort hinir handteknu heita Ómar Ragnarsson eða eitthvað annað.
En Ómar komst ágætlega að orði er hann sagði þegar honum var birt kæra:
„Það er gott, af því að maður hefur aldrei verið handtekinn áður, að tilefnið skuli vera það að maður skuli vilja sitja úti í íslenskri náttúru, kyrr.“
Og þetta gerist í sjálfu draumasveitafélaginu Garðabæ.