fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Eyjan

Berskjölduð gagnvart bönkum

Egill Helgason
Mánudaginn 9. september 2013 13:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í grein um eftirlitsiðnað fyrr í dag skrifaði ég að almenningur – og reyndar samfélagið allt – stæði höllum fæti gagnvart bankavaldinu. Það getur ákveðið ýmislegt að geðþótta, fólk möglar af veikum mætti, en það hefur lítil áhrif.

Þróunin hefur reyndar verið merkileg. Nú eru í raun allir neyddir til að eiga viðskipti við banka. Laun eru greidd í gegnum banka, varla neinn kemst upp með að hafa ekki bankareikning og nota kredit- og debetkort.

Svona var þetta ekki þegar ég var að stíga mín fyrstu skref á vinnumarkaði. Það er búið að færa hérumbil alla peninga sem við öflum inn í bankana – og þeir geta gert sér mat úr þeim. Ein aðferðin er hin gríðarlegi vaxtamunur sem tíðkast hér á landi, munurinn á því sem við borgum bönkunum fyrir að fá lánaða hjá þeim peninga og fyrir að lána þeim peninga – því auðvitað erum við að lána bönkunum peninga þegar við leggjum fé inn í þá.

Þetta birtist líka í smærri hlutum, eins og til dæmis öllum færslugjöldunum sem nú eru farin að tíðkast. Maður borgar fyrir að fá að taka sína eigin peninga út úr hraðbanka, maður borgar fyrir að fá að vita hvað maður á mikla (eða litla) peninga í bankanum.

Stjórnmálamenn virðast alveg máttlausir gagnvart þessu – reyndar eins og þeir eru nær alltaf gagnvart fjármálavaldinu. Þeir virðast einfaldlega of smáir og aumir til að takast á við það. Það er náttúrlega ekkert sér-íslenskt fyrirbæri. En maður skyldi samt halda að auðveldara sé að eiga við fjármálavald sem er veiklað eftir hrun en ella. Samt lét síðasta ríkisstjórn sér nægja að endurreisa bankakerfið í nánast óbreyttri mynd. Kerfið heldur alltaf sínu, jafnvel þótt það verði uppvíst að svindli eða bregðist trúnaði heillar þjóðar.

Eins og ég haf áður sagt var ég á ráðstefnu vestur á fjörðum um helgina. Eitt af því sem þar var rætt voru samfélagsbankar, bankar sem starfa í þágu nærumhverfis síns. Þetta eru bankar sem hafa ekki að leiðarljósi hagnað fyrir hluthafa, heldur að efla góð og skynsamleg fyrirtæki og hjálpa þeim að komast á legg. Um leið gera bankarnir kröfu um samfélagsábyrgð, þeir lána til dæmis ekki til fyrirtækja sem valda skaða á umhverfi.

Bankar af þessu tagi hafa vaxið á síðustu árum. Um var reyndar nokkuð fjallað í Silfri Egils, þrír slíkir bankar fengu umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2010.

Þetta er auðvitað nokkuð í anda gömlu sparisjóðanna, þeir höfðu svipaðar hugmyndir. En að endingu voru þeir orðnir nákvæmlega eins og aðrir bankar uns þeim var rænt undir því yfirskini að þar væri „fé án hirðis“. Stofnfé var breytt í hlutafé – og stuttu síðar hrundu þeir til grunna.

— — —

Ég ætla að bæta við þessa tölu bréfi sem mér barst frá lesanda í dag:

„Hér teljum við okkur trú um að neytendur séu þokkalega verndaðir á Íslandi, og höfum til þess hinar ýmsu opinberu „eftirlitsstofnanir“ s.s. Neytendastofu, Umboðsmann neytenda og svo Neytendasamtökin (nýtur opinbers stuðnings bæði innanlands og svo frá ESB).

Einnig á FME að gegna ákveðnu neytendaverndarhlutverki sbr. http://www.fme.is/eftirlitsstarfsemi/neytendavernd/ .
Sem felst í raunveruleikanum einungis í því að taka við kvörtunum og er meira í orði en borði. Og lítt eða ekkert fylgt eftir, enda krefst slíkt mun meiri ákveðni og hörku gagnvart aðilum á markaði, heldur en FME ástundar.

En í raun er það engin, og þá á ég við engin, sem sinnir markvissri neytendavernd á þá sviði sem varðar líklega flesta neytendur mestu. En það eru þjónustukaup á sviði fjármálaþjónustu.

Samskipti Jóns og Gunnu við stór og öflug fyrirtæki í flókinni fjármálastarfsemi, sem Jón og Gunna hafa oftar en ekki litin ef nokkurn skilning á.

Óvíða er munurinn meiri á stöðu seljanda og kaupanda þjónustu, en akkúrat í þessum geira. Og bæði tafsamt og kostnaðarsamt er að leita réttar síns gegn stórum aðilum sem beita heilu lögfræðideildunum miskunarlaust gegn lítilmagnanum, sem kannski er í fullum rétti, en á ekki kost á að fylgja honum eftir sökum tíma og fjárskorts.

En Bandaríkjamenn fóru áhugaverða leið í því að http://www.consumerfinance.gov/.

Danir hafa farið sína leið http://www.pengepriser.dk/frontpage.

Hér erum að ræða samstarfsvettvang neytendasamtaka (Forbrugerrådet- http://taenk.dk ) og samtaka fjármálafyrirtækja (www.finansraadet.dk ) í Danmörku, er miðar að því að auka samkeppni, gagnsæi og einfalda samanburð á dönskum fjármagnsmarkaði, almennum neytendum til hagsbóta. Ekki síst vekur athygli að töluleg gögn á vefsíðu þessari eru á ábyrgð einstaka fjármálafyrirtækja. www.Pengepriser.dk

Bretar hafa meira segja sjálfstæða stofnun utan síns fjármálaeftirlits http://www.fs-cp.org.uk/.

En um leið sinnir breska fjármálaeftirlitið neyendavernd markvisst
„…Securing the appropriate degree of protection for
consumers is critical to restoring and maintaining
confidence in the financial services industry…“
http://www.fsa.gov.uk/pubs/plan/pb2010_11.pdf.

Veikburða þingsályktunartillaga var flutt um málið http://www.althingi.is/altext/140/s/0012.html sem virðist hafa gufað upp.

P.s. og Alþingi hefur t.d. ekki mikið sinnt neytendamálum mikið í gegnum tíðina sbr.
http://www.althingi.is/dba-bin/ls.ff.pl?stofn1=true&texti1=neytendavernd.

Og svo vilja menn skera niður eftirlitsiðnaðinn hér á landi……“

9f7a4a3bce-382x232_o

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Play hlýtur sjálfbærniásinn annað árið í röð

Play hlýtur sjálfbærniásinn annað árið í röð