fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Sigurvegarar og taparar í prófkjörum helgarinnar

Egill Helgason
Mánudaginn 28. janúar 2013 09:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður Elín Árnadóttir styrkja stöðu sína mikið með stórum sigrum í prófkjörum hjá Sjálfstæðisflokknum. Eftir þetta eru þau bæði komin framarlega í röð ráðherraefna flokksins. Hvorugt þeirra hefur verið sérstaklega í náðinni hjá innsta kjarnanum í Valhöll, Ragnheiður Elín var sett af sem þingflokksformaður – hún studdi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í formannskjöri – en Kristján Þór stýrði framtíðarnefnd flokksins, tillögur hennar mættu engum sérstökum skilningi meðal flokksforystunnar.

En eftir þessa sigra verður erfitt að sniðganga þau. Þau eru komin fremst í röðina ef Sjálfstæðisflokkurinn fer í ríkisstjórn ásamt Bjarna Benediktssyni, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Illuga Gunnarssyni og máski Einari Kr. Guðfinnssyni.

Afhroð Árna Johnsen og Tryggva Þórs Herbertssonar í prófkjörunum vekur athygli. Hvað Árna varðar er kannski furða að hann skuli hafa þraukað svona lengi á þingi, hann kom fyrst þangað inn 1983, og náði að komast aftur í raðir þingmanna eftir að hafa setið í fangelsi fyrir spillingarmál. Það verður að teljast einsdæmi.

Hvað Tryggva varðar þá tefldi hann djarft að reyna að ná fyrsta sætinu í Norðurlandskjördæmi eystra af Kristjáni Þór. Nú kemur á daginn að það var heldur vonlítil barátta. Tryggvi húrrar niður listann. Hann kveður með þeim orðum að gott verði að losna við „hælbíta og illt umtal sem fylgir þeim“. Það geta kannski flestir sagt sem starfa í stjórnmálum – fólki liggur afskaplega illt orð til stjórnmálamanna núorðið. En Tryggvi var í þeirri furðulegu stöðu að komast inn á þing eftir að hafa veitt föllnu útrásarfyrirtæki forstöðu og eftir að hafa verið efnahagsráðgjafi Geirs Haarde. Það reyndist á endanum of þungur baggi að bera.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki