fbpx
Sunnudagur 20.júlí 2025
Eyjan

Ísland, sam-evrópskt fjármálaeftirlit og fullveldið

Egill Helgason
Föstudaginn 17. október 2014 08:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heldur hefur hún farið lágt fréttin um að Ísland ætli í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið að gerast aðili að sam-evrópsku fjármálaeftirliti.

En svona er málið kynnt í norskum fjölmiðlum:

Að Siv Jensen, fjármálaráðherra úr Framfaraflokknum, ætli að leggja til að Noregur afsali sér hluta fullveldis síns með því að undirgangast evrópska eftirlitið.

Nákvæmlega eins er komið fyrir Íslandi, því í frétt fyrr í vikunni kom fram að Bjarni Benediktsson, fyrir Íslands hönd, hafi fallist á samkomulag um innleiddar verði hér reglur um sam-evrópskt fjármálaeftirlit. Bjarni sagði að þær yrðu lögfestar hér innan tíðar.

Í fréttinni sagði reyndar líka að þetta hefði í för með sér framsal fullveldis sem stjórnarskráin heimilaði ekki.

En er það svo? Margir hafa reyndar verið þeirrar skoðunar að EES samningurinn hafi brotið gegn stjórnarskránni nánast frá fyrstu tíð með sínu stórtæka fullveldisframsali.

Í tengslum við endurskoðun stjórnarskrárinnar hefur mikið verið rætt um nauðsyn þess að setja þar inn ný ákvæði um framsal fullveldis. Heitir andstæðingar ESB hafa verið á móti því, en þetta virðist vera nauðsynlegt ef menn vilja halda áfram með EES samninginn – og hefði sjálfsagt átt að gerast fyrir löngu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Ferguson fer til Roma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar skrifar: Réttindabrot gegn fötluðum og öldruðum einstaklingum

Sigurður Hólmar skrifar: Réttindabrot gegn fötluðum og öldruðum einstaklingum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stalín er ekki lengur hér

Óttar Guðmundsson skrifar: Stalín er ekki lengur hér