fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Önnur vika kennaraverkfalls

Egill Helgason
Mánudaginn 24. mars 2014 11:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laun kennara eru alltof lág – ég held að flestir geti verið sammála um það. Guðmundur Andri Thorsson skrifar um þetta ágætan pistil í Fréttablaðið í dag. Hann tengir kennaralaunin við verðmætamat samfélagsins:

Þau sýna – hvað sem orðagjálfri líður – að menntun nýtur ekki þeirrar virðingar sem er sjálf forsenda framfaranna. Nú eru háskólakennarar einnig teknir að ókyrrast og skyldi engan undra: ekki síst hefur stundakennsla á háskólastigi hér verið nokkurs konar góðgerðastarfsemi eða þegnskylduvinna.

Og ennfremur:

Forsenda þessa alls er ákveðið hugarfar, ákveðin sýn á sjálfan sig og samfélagið sitt, ákveðið verðmætamat. Við eigum að vísu sögur um dásamleg séní sem voru droppát, allt frá Halldóri Laxness til Bjarkar, en til að slíkt fólk njóti sín þarf að vera viss jarðvegur, visst hugarfar, visst menntunarstig, visst verðmætamat þar sem störf kennara eru metin að verðleikum.

Framhaldsskólakennarar hafa nú verið í verkfalli í viku, önnur vikan er að hefjast. Það virðist ekki þokast neitt í samningum. Vandi framhaldsskólakennara er meðal annars sá að verkfall hjá þeim bítur ekki tafarlaust. Tugþúsundir ungmenna eru heima að lufsast, sumir tefjast í námi eða detta jafnvel út úr skóla, en framhaldsskólakennarar geta ekki lamað atvinnulífið. Þeir eru ansi margir sem verða ekkert varir við verkfall þeirra.

Verkföll grunnskólakennara og leikskólakennara hafa meira bit – þá sitja heima ung börn sem ekki geta bjargað sér. En það breytir því ekki að nauðsynlegt er að semja hið fyrsta við framhaldsskólakennara – það er óþolandi tilhugsun ef verkfalll þeirra dregst í margar vikur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu