
Hér má sjá upptöku af Viðtalinu síðan í gærkvöldi. Þar ræddi ég við Pál Hjaltason, formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, um nýtt aðalskipulag borgarinnar.
Þarna er komið inn á ýmis mál, þéttingu byggðarinnar, umferð, aukinn ferðamannastraum, byggingar meðfram svokölluðum þróunarásum, þjónustu í hverfum, svo nokkuð sé nefnt.