

Það er náttúrlega mjög óþægilegt að British Broadcasting Corporation skuli vera kallað BBC, Norsk Riks-Kringkastning skuli í daglegu tali heita NRK og Cable News Network skuli kallast CNN.
Jú, svo eru líka sjónvarps- og útvarpsstöðvar eins og DR, YLE, SVT, TF1, ARD, og ZDF, CBS og NBC.
Hvers eiga þær að gjalda að heita þessum skammstöfunum?
Víkjum að Ríkisútvarpinu á Íslandi. Það hefur gengið undir ýmsum nöfnum. Einu sinni var talað um Útvarpið – það var stofnunin í heild sinni – Hjóðvarpið og Sjónvarpið.
Nafnið Hljóðvarp datt útbyrðis, en lengi voru menn að þráast við að tala um Sjónvarpið með stórum staf. Það var mjög erfitt að nota í rituðu máli, hvenær voru menn að tala um sjónvarp og hvenær um Sjónvarpið?
Svo var farið út í að kanna þetta fyrir nokkrum árum. Þá kom í ljós að í máli almennings var þetta farið að heita RÚV. Það var gerð skoðanakönnun sem sýndi að þetta var orðinn hlutur. Fólk notaði skammstöfunina RÚV.
Ég kem daglega í vinnu í Efstaleiti 1 og bið menn að láta nýja fallega ljósaskiltið þar sem stendur RÚV í friði. Það lýsir vel í myrkrinu.
