fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Eyjan

Dimmir yfir olíuævintýri Brasilíu – hvaða áhrif hefur vinnsla á jarðgasi?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 7. janúar 2014 19:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í grein í Washington Post má lesa hvernig olíudraumar Brasilíumanna eru að verða að engu. Fyrir fáum árum var mikið talað um olíuævintýri sem væri í uppsiglingu í Brasilíu. Menn giskuðu á að í hafinu fyrir utan Brasilíu væri að finna jafngildi 50 milljarða tunna af olíu, þeir bjartsýnustu fóru upp í 250 milljarða tunna.

Nú horfir þetta allt öðruvísi við, samkvæmt stórblaðinu. Olíufyrirtæki sem hafa stundað leit undan ströndum Brasilíu eru að missa áhugann. Ríkisolíufélagi Petrobas er skuldum vafið.

Ástæðan er ekki einungis sú að menn virðast hafa ofmetið hversu mikil vinnanleg olía er þarna á hafsbotni, heldur líka hitt að heimurinn er í auknum mæli að snúa sér að öðrum orkugjöfum. Það er ekki eins freistandi að leita að olíu á svæðum þar sem er erfitt að vinna hana.

Þarna höfum við annars vegar stórfelld vinnsla á olíu úr sandi, líkt og í Kanada, og hins vegar geysilegur uppgangur í vinnslu á jarðgasi með þeirri aðferð sem kallast fracking á ensku.  Hún byggir á því að gasi er hleypt upp úr jarðlögum með því að dæla þangað vatni, blönduð sandi og kemískum efnum, af miklum krafti. Jarðgasvinnslunni hefur verið líkt við orkubyltingu sem kunni að vera aðal aflvaki hagvaxtar á næstu árum. Um það er þó deilt, sem og um umhverfisáhrifin, en víst er að þetta er farið að hafa mikil áhrif á orkumarkaðinn líkt og lesa má á Orkubloggi Ketils Sigurjónssonar.

marcellus_hydraulic_graphic_090514-620x502

Á þessari skýringarmynd má sjá hvernig gas er unnið úr jarðlögum með aðferðinni sem kallast fracking. Gasið er til í gífurlegu magni en erfitt hefur verið að nýta það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær