fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Þéttbýlasta borg Norðurlandanna varð að hinni dreifbýlustu en hlýtur að þéttast aftur

Egill Helgason
Fimmtudaginn 2. janúar 2014 15:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavík þróaðist á stuttu árabili frá því að vera þéttbyggð borg yfir í að vera dreifbýlasta borg á Norðurlöndum. Ásgeir Jónsson hagfræðingur skrifar um þróun byggðarinnar í Reykjavík í nýtt hefti tímaritsins Vísbendingar.

Ásgeir rekur hvernig samgöngurnar hafa haft áhrif á þéttleika byggðarinnar, uns, eins og hann segir í lokaorðunum, að óhjákvæmilegt er að borgin fari að þéttast aftur:

„Höfuðborgarsvæðið hefur nú náð þeim krítíska punkti að samgöngukerfi þess, byggt á einkabílum og stofnbrautum, er komið að ákveðnum þolmörkum. Á síðustu árum hafa skapast sterkir hagrænir hvatar til þéttingar byggðar með hækkandi eldsneytisverði og vaxandi umferðarálagi, sem hafa aukið bæði ferðatíma og ferðakostnað innan borgarsvæðisins.

Ásókn fólks í það að búa nær miðju borgarinnar hefur vaxið svo það eigi hægar með að sækja vinnu, þjónustu og menningu. Þessu til viðbótar hafa lægri vextir og fleiri möguleikar til fasteignafjármögnunar auðveldað fólki að kaupa húsnæði nær miðju borgarinnar. Búsetuvalið stendur á milli þess að „kaupa eða keyra“ – það er kaupa tiltölulega dýrt húsnæði miðsvæðis vegna nálægðarinnar eða keyra langa leið frá ytri mörkum borgarinnar þar sem fermetraverð er lægra en í miðbænum. Báðir þessar þættir – hækkandi eldsneytisverð og lækkandi vextir – hafa nú snúist á sveif með miðbænum. Breytingar í atvinnuháttum, einkum vöxtur þjónstugreina – allt frá ferðaþjónustu til ýmis konar sérhæfðrar þjónustu – munu einnig leggjast á sömu sveif.

Þegar litið er fram má búast við aukinni þéttni í búsetu á höfuðborgarsvæðinu og þá jafnframt að bæði fasteignaverð og húsaleiga á miðlægum svæðum muni hækka töluvert. Hægt er að orða það svo að Reykjavík sé aftur á leið til fortíðar.“

a-reykjavik-1011073

Skólavörðuholtið er þéttbýlasta svæðið í Reykjavík. Ásgeir spáir því að fasteignaverð og húsaleiga muni enn hækka miðsvæðis í borginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins