fbpx
Föstudagur 19.september 2025
Eyjan

Sendiráði Íslands í Mósambík lokað – Þróunarsamvinna breytist

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 15. nóvember 2017 16:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þróunarsamvinna Íslands við Mósambík mun taka breytingum um næstu áramót þegar Mósambík breytist úr tvíhliða samstarfslandi í áhersluland, en önnur áherslulönd Íslands eru Palestína og Afganistan. Sendiráði Íslands í Mapútó verður lokað en þó er ekki gert ráð fyrir umfangsmiklum samdrætti í heildarframlögum til verkefna í landinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Stuðningi við áherslulönd verður beint í gegnum fjölþjóðastofnanir, skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og borgarasamtök og verður sinnt af þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins sem fylgist með að fjármunum sé ráðstafað í samræmi við áætlanir og sinnir reglubundnu eftirliti um framvindu. Fjármagni sem annars hefði verið varið í rekstur sendiráðs í Mapútó verður varið til annarra verkefna á sviði tvíhliða þróunarsamvinnu í samstarfslöndum eða svæðaverkefna. Markmið breytinganna er að auka skilvirkni og bæta árangur af þróunarframlögum Íslands.

Ákvörðun þessi var tekin í kjölfar ítarlegrar greiningarvinnu sem fram fór á árunum 2014-2016 þar sem litið var til ýmissa þátta, með það að augnamiði að þróunarframlög Íslands nýttust sem best. Þar á meðal var litið til umfangs þróunarsamvinnu við landið, fjölda framlagsríkja, mati á mikilvægi þróunarframlaga Íslands og stjórnarfars. Ísland mun þannig halda áfram stuðningi við Mósambík í gegnum samstarfsverkefni með Barnahjálp SÞ um vatn og salernisaðstöðu og nýtt samstarfsverkefni með UN Women um konur, frið og öryggi. Jafnframt munu sérfræðingar frá Mósambík halda áfram að stunda nám við Jafnréttisskóla Háskóla SÞ og Sjávarútvegsskóla Háskóla SÞ á Íslandi. Því til viðbótar er veittur stuðningur til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, WFP, í formi framlaga og útsendingu sérfræðinga á sviði mannúðaraðstoðar, en sem stendur eru tveir íslenskir sérfræðingar að störfum fyrir WFP í Mósambík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Framkvæmdastjóri N1: Finnum fyrir velvilja úti á landi – meiri andstaða í höfuðborginni

Framkvæmdastjóri N1: Finnum fyrir velvilja úti á landi – meiri andstaða í höfuðborginni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Það skiptir máli hverjir stjórna – berin eru súr, sagði Mikki refur

Orðið á götunni: Það skiptir máli hverjir stjórna – berin eru súr, sagði Mikki refur