Katrín Hall mun stýra stærsta samtímadansflokki Norðurlanda
Katrín Hall hefur verið ráðin listrænn stjórnandi dansflokks Gautaborgaróperunnar, sem er stærsti samtímadansflokkur Norðurlanda og einn sá helsti í Evrópu. Frá þessu er greint í sænskum fjölmiðlum í dag.
Katrín tekur við starfinu af Adolophe Binder sem hefur gegnt því undanfarin fimm ár. Katrín byrjaði sem dansari hjá íslenska dansflokknum árið 1981. Frá 1988 til 1996 starfaði hún í Þýskalandi, meðal annars sem sólódansari við Tanzforum, dansflokk óperuhússins í Köln. Katrín var listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins frá 1996 til 2012. Hún hefur samið fjölmörg verk fyrir flokkinn og fyrir ýmsa alþjóðlegra danshópa.
Hér fyrir neðan má sjá myndband með brotum úr nokkrum dansverkum eftir Katrínu Hall.
Katrin Hall Choreography from Katrín Hall on Vimeo.