fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024

Sjö morð í Sonoma

Ramon Salcido grunaði eiginkonu sína um ótryggð – Allir ættingjar hennar skyldu deyja

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 1. október 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að kvöldi 13. apríl, 1989, tók Ramon nokkur Salcido, frá Sonoma-sýslu í Kaliforníu, vel á því í drykkju og kókaínneyslu, enda verulega niðurdreginn vegna yfirvofandi atvinnumissis og skilnaðar.

Salcido fékk þá flugu í höfuðið að hann hefði staðið í uppeldi þriggja stúlkna sem hann átti ekkert í og varð sannfærður um að eiginkona hans hefði verið honum ótrú með yfirmanni hans, Tracy Toovey, vínkaupmanni í Sonoma.

Að morgni næsta dags hafði Salcido ákveðið hvað gera skyldi, sá dagur varð verulega sorglegur.

Fleygt á sorphauga

Þennan morgun setti Salcido dætur sínar þrjár; Sophiu, fjögurra ára, Carminu, þriggja ára, og Teresu, eins árs, í fjölskyldubílinn og voru þær aðeins íklæddar náttfötunum. Síðan hóf hann leit að Angelu, eiginkonu sinni, en sú leit bar ekki árangur.

Salcido ók sem leið lá að sorphaugum skammt frá Petaluma-borg og skar þar dætur sínar á háls og henti þeim á haugana.

Kominn á bragðið

Salcido hugðist ekki láta þar við sitja og lagði sennilega höfuðið í bleyti. Niðurstaðan varð sú að kanna hvort Angela kynni að vera hjá móður sinni og þangað ók hann.

En Angela var ekki hjá móður sinni, en Salcido lét engu að síður hendur standa fram úr ermum. Hann byrjaði á að berja tengdamóður sína, Marion Richards, til bana en síðan færðist ofbeldið upp á nýtt og óhugnanlegra stig.

Allir skulu deyja

Síðar kom í ljós að Salcido hugðist fyrirkoma öllum ættingjum eiginkonu sinnar. Því fór það svo að þegar hann var búinn að berja tengdamóður sína til ólífis sneri hann sér að tveimur yngstu dætrum hennar, fleiri voru ekki heima.

Ruth, tólf ára, og Marie, átta ára, áttu ekki möguleika gegn sturluðum manninum. Hann skar þær báðar á háls og misþyrmdi þeim kynferðislega.

Leitaði langt yfir skammt

En Angela var enn ófundin og Salcido ekki reiðubúinn til að láta staðar numið. Þegar upp var staðið kom í ljós að hann hafði leitað langt yfir skammt, því hann fann eiginkonu sína heima. Hún hafði ekki hugmynd um þær hörmungar sem átt höfðu sér stað og átti sér einskis ills von.

Hvort Angela fékk nokkru sinni að vita um afdrif fjölskyldu sinnar skal ósagt látið, en Salcido skaut hana til bana á heimili þeirra.

Ekki allt búið enn

Salcido ku hafa teygað kampavín þegar hann ók frá heimili sínu, en síðar var ljóst að honum fannst enn vanta punktinn yfir i-ið.

Áðurnefndur vínkaupmaður, Toovey, átti og rak Grand Cru-víngerðina í Sonoma. Salcido var þess fullviss að Toovey hefði gert sér dælt við Angelu, og gott betur. Án efa hefur honum því þótt viðeigandi að ljúka þessum blóðuga degi á víngerðinni, sem hann og gerði og dagar hins meinta ástmanns voru taldir.

Handtekinn í Mexíkó

Að þessu öllu loknu ók Salcido til Los Mochis í Mexíkó, heim til mömmu sinnar. Þar var hann handtekinn og síðar framseldur til Kaliforníu til að svara til saka fyrir ódæði sín.

Ramon Salcido var dæmdur til dauða 17. desember 1990, og bíður víst enn örlaga sinna. Að sögn hefur hann síðan snúið sér til kristinnar trúar og í yfirlýsingu sem hann skrifaði, Saga mín, segir hann: „Þetta var hræðilegur harmleikur […]. Það eina sem mig langaði var að deyja því ég hafði glatað öllum sem ég hafði nokkru sinni elskað. Þá skildi maður Biblíuna eftir í klefanum mínum […].

Ljósið í myrkrinu

Um einum og hálfum sólarhring eftir að Salcido fleygði dætrum sínum á haugana við Petaluma fannst Carmina þar á lífi, liggjandi við hlið látinna systra sinna.

Carmen var síðar ættleidd af fjölskyldu í Missouri og árið 2009 skrifaði hún bók um reynslu sína; Not Lost Forever.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Sakar Katrínu um að svíkja börnin á Gaza – „Hennar skömm er sérstaklega mikil þar sem hún vissi betur“

Sakar Katrínu um að svíkja börnin á Gaza – „Hennar skömm er sérstaklega mikil þar sem hún vissi betur“
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Varð fyrir alvarlegum heilaskaða eftir ljótan hrekk vina sinna

Varð fyrir alvarlegum heilaskaða eftir ljótan hrekk vina sinna
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United búið að funda með Sancho og endurkoma er í kortunum

United búið að funda með Sancho og endurkoma er í kortunum
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Átti að hjálpa fjölskyldum látinna hermanna en sveik þær í staðinn

Átti að hjálpa fjölskyldum látinna hermanna en sveik þær í staðinn
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Réttarhöld yfir Kolbeini um miðjan mánuðinn

Réttarhöld yfir Kolbeini um miðjan mánuðinn
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir leiki helgarinnar – Titillinn vinnst á einu stigi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir leiki helgarinnar – Titillinn vinnst á einu stigi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hafnaði Bayern Munchen fyrir West Ham

Hafnaði Bayern Munchen fyrir West Ham
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu myndband sem hefur vakið athygli – Rennitæklaði barn um helgina

Sjáðu myndband sem hefur vakið athygli – Rennitæklaði barn um helgina