fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
433Sport

Amorim færist nær starfinu

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 14. júní 2026 09:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruben Amorim gæti verið á leið aftur í þjálfun aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United.

Samkvæmt Sky Sports á Ítalíu er portúgalski þjálfarinn einn helsti kandídatinn til að taka við AC Milan fyrir komandi tímabil. Amorim hefur verið án vinnu síðan hann var látinn fara frá Old Trafford í janúar eftir rúmlega árs starf hjá enska stórliðinu.

Amorim tók við Manchester United í nóvember 2024 eftir farsælt tímabil hjá Sporting. Hann stýrði United alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á fyrsta tímabili sínu, en náði ekki að skapa nægan stöðugleika í ensku úrvalsdeildinni og missti starf sitt um miðbik síðasta tímabils.

AC Milan er að leita að nýjum þjálfara eftir vonbrigðatímabil og Amorim er sagður ofarlega á óskalista félagsins. Annar sterkur kandídat er Matthias Jaissle, núverandi þjálfari Al-Ahli í Sádi-Arabíu, sem áður gerði góða hluti með Red Bull Salzburg í Austurríki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands
433Sport
Í gær

Fjármálin einn stór farsi – „Ég botna ekki í því hvernig þetta rúllar“

Fjármálin einn stór farsi – „Ég botna ekki í því hvernig þetta rúllar“
433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Brighton með áhugavert tilboð í varnarmann Tottenham

Brighton með áhugavert tilboð í varnarmann Tottenham