

Fimmtán strætisvagnar Strætó bs. koma frá kínverska framleiðandanum Yutong. Umræða hefur verið um öryggisbresti í vögnunum og hvort hugsanlega sé hægt að stýra þeim frá Kína.
Alls eru fimmtán rafvagnar frá Yutong í flota Strætó bs en heildarfjöldi rafvagna er fjörutíu. Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Segir í svarinu að í nóvember og desember síðastliðnum hafi komið tíu rafvagnar til landsins. Þeir séu kínverskir en ekki frá framleiðandanum Yutong. Stefnt er að því að allir strætisvagnar verði orðnir rafvagnar árið 2029.
Flestir Yutong vagnarnir eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en einn þeirra er notaður í akstri á landsbyggðinni. Samkvæmt áætlunum verða sex Yutong vagnar í akstri á landsbyggðinni fyrir árslok á þessu ári.
Það var norska almenningssamgöngufyrirtækið Ruter sem komst að því í fyrra að Yutong hefði aðgang að hugbúnaði í rafvögnum sínum. Það er að Yutong gæti meðal annars stöðvað vagnana.
Fjöldi vagna er á hinum Norðurlöndunum og hafa eigendur þeirra reynt að loka fyrir þennan aðgang. Umboðsaðili vagnanna hér á landi, YES-EU ehf, segir að lítið mál sé að koma í vegn fyrir þetta, meðal annars með því að skipta út sendingarhugbúnaði.
Í upphafi árs kallaði Þórdís Kolbrún eftir upplýsingum um Yutong vagnana og hvernig stjórnvöld hafi brugðist við fréttunum að hægt væri að hafa áhrif á virkni þeirra með rafrænum hætti.
Ráðherra segir að brugðist hafi verið við og meðal annars haft samráð við Samgöngustofu, Strætó bs og Vegagerðina.
„Samgöngustofa óskaði eftir upplýsingum um málið frá norskum stjórnvöldum. Í svarinu kom fram að stjórnvöld þar í landi hafi sjálf ekki framkvæmt úttektir á vögnunum en hygðust gera það í ár, 2026. Í svarinu kom einnig fram að ólíklegt sé að framleiðandi vagnanna geti stjórnað vagni sem er í gangi,“ segir í svari Eyjólfs. „Líkt og þekkist hjá öðrum bifreiðaframleiðendum sem reiða sig á þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur, er fræðilegur möguleiki að hægt sé að hafa áhrif á virkni vagna. Þessi svör byggjast á rannsókn norska samgöngufyrirtækisins Ruter. Norsk stjórnvöld munu deila niðurstöðum sínum þegar þær liggja fyrir.“
Þá hafi borist svör frá Svíþjóð þess efnis að líklegt sé að Yutong hafi aðgang til að gera hugbúnaðaruppfærslur á vögnunum en ekki stýra þeim með fjarskipunum.
„Samkvæmt upplýsingum sem Vegagerðin kallaði eftir vinnur umboðsaðili Yutong-vagnanna að því að koma upp eftirlitskerfi og að breyta hugbúnaði vagnanna þannig að upplýsingum frá þeim sé ekki miðlað til framleiðanda. Eftir það hafa framleiðendur ekki neina beina tengingu við vagnana. Unnið er að vottun þessa hugbúnaðar í Noregi og síðar í fleiri ríkjum Norðurlanda. Strætó bs. er í samtali við norsku samgöngufyrirtækin varðandi innleiðingu þessara lausna,“ segir í svari Eyjólfs.