fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Áætlunarakstur Strætó hættir í einu hverfi í Hafnarfirði – Samfylkingin segir ákvörðunina afdrifaríka

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. mars 2026 17:30

Meirihlutinn segir notkunina dræma en minnihlutinn segir hana vaxa jafnt og þétt. Skjáskot/Ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar hefur lagt til að áætlunarakstri Strætó um iðnaðarhverfið í Hellnahrauni verði hætt. Nýtingin er sögð dræm en minnihlutinn telur ákvörðunina vera varhugaverða og að notkunin sé að aukast.

Um er að ræða tilraunaverkefni með leið númer 26 sem keyrir frá Ásvallalaug um Berghellu, Gjáhellu, Breiðhellu, Koparhellu, Tinhellu, Álfhellu og Dofrahellu. Iðnaðarhverfið sunnan við Vallahverfið.

Eins og segir í fundargerð frá því í gær ákváðu fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, að leggja til að verkefninu verði ekki haldið áfram og áætlunarakstur um hverfið falli niður 1. apríl næstkomandi.

„Gögnin sýna dræma nýtingu sem réttlætir ekki sérstakan vagn á leiðinni,“ segir í bókun þeirra. Lagt er til að í staðinn verði tekin upp svokölluð pantþjónusta Strætó í staðinn. En hún hefur verið í sumum hverfum, eins og til dæmis Urriðaholtinu í Garðabæ.

Afdrifarík mistök

Samfylkingin, sem er í minnihluta í bæjarstjórn, lagðist gegn því að verkefninu yrði hætt og sagði það alvarleg mistök.

„Rulltrúar Samfylkingarinnar telja mjög varhugavert að taka afdrifaríka ákvörðun um að hætta með akstursþjónustu strætó á leið 26 um Hellnahraun frá og með 1.apríl.,“ segja þeir. Notkunartölur sýni að fleiri hafa nýtt sér þessa þjónustu en pantþjónustuna og að verkefnið þurfi meiri tíma. Notkunin hafi aukist jafnt og þétt á tímabilinu. Fulltrúi Viðreisnar, sem einnig er í minnihluta, óskaði eftir heildstæðri endurskoðun á leiðarkerfi Strætó fyrir innanbæjarvagna Hafnarfjarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn
Fréttir
Í gær

Telja að Landsréttur hafi átt að meta það hvort 13 stúlka hefði þroska til að samþykkja kynlíf með 21 árs manni

Telja að Landsréttur hafi átt að meta það hvort 13 stúlka hefði þroska til að samþykkja kynlíf með 21 árs manni
Fréttir
Í gær

Starmer fær hjálp úr óvæntri átt – Segir Trump barnalegan

Starmer fær hjálp úr óvæntri átt – Segir Trump barnalegan
Fréttir
Í gær

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Í gær

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust