fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Mannslát á Kársnesi: Verður ákærður fyrir manndráp

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 12:02

Mynd frá vettvangi í lok nóvember.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og níu ára gamall grískur maður verður ákærður fyrir manndráp vegna andláts fertugs Portúgala á heimili sínu á Kársnesi í Kópavogi í lok nóvember 2025.

DV fékk þær upplýsingar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að rannsókn málsins væri lokið og málið væri komið til héraðssaksóknara. Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, staðfestir í samtali við DV að gefin verði út ákæra um manndráp á hendur manninum á næstu dögum.

Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út í dag, 18. mars, og hefur það verið framlengt í þessum rituðu orðum.

Maðurinn var upphaflega handtekinn nokkrum dögum eftir að hinn látni fannst og sat þá í gæsluvarðhaldi í nokkra daga, en var síðan látinn laus. Hann var handtekinn strax næsta dag eftir að ný gögn komu fram og hefur hann síðan þá setið í gæsluvarðhaldi.

Stunguáverkar fundust á hinum látna manni en lögregla hefur ávallt gefið mjög takmarkaðar upplýsingar um rannsókn málsins. Málið fer hins vegar fyrir dóm á næstu vikum eða mánuðum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Færeyingur sem berst í Úkraínu biður um aðstoð

Færeyingur sem berst í Úkraínu biður um aðstoð
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf
Fréttir
Í gær

Konu stefnt til greiðslu skuldar – Seldi bílinn áfram í stað þess að borga hann

Konu stefnt til greiðslu skuldar – Seldi bílinn áfram í stað þess að borga hann
Fréttir
Í gær

Hjón ákærð fyrir fjárdrátt og peningaþvætti – Sögð hafa selt bíla í umboðssölu en ekki skilað kaupverðinu

Hjón ákærð fyrir fjárdrátt og peningaþvætti – Sögð hafa selt bíla í umboðssölu en ekki skilað kaupverðinu