fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, er ekki hrifinn af hugmyndum þess efnis að aftur verði tekin upp gjaldtaka í Hvalfjarðargöngum.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði í gær fram frumvarp um stofnun innviðafélags í eigu ríkisins, en markmið þess er að hraða uppbyggingu stórra samgönguverkefna. Í frumvarpinu er opnað á möguleikann á gjaldtöku á öllum stofnleiðum frá höfuðborgarsvæðinu, Hvalfjarðargöngum þar á meðal. Ekki eru allir hrifnir af hugmyndinni.

„Það vekur verulegar áhyggjur og undrun að aftur skuli vera til skoðunar að leggja gjald á Hvalfjarðargöng. Göngin voru byggð upp með skýru fyrirkomulagi þar sem notendur greiddu fyrir framkvæmdina – og því verkefni er lokið. Innheimta gjalda stóð yfir í rúm 20 ár, frá 11. júlí 1998 til 21. september 2018. Það var samkomulagið sem Spölur gerði: Borga göngin upp og afhenda ríkinu göngin.“

Vilhjálmur, sem hefur árum saman barist fyrir hagsmunum skjólstæðinga sinna á Akranesi, segir það rétt að margir landsmenn nýta göngin, enda séu þau mikilvæg samgönguæð fyrir allt landið.

„Hins vegar er ljóst að hlutfallslega reiða íbúar Akraness og nágrennis sig hvað mest á þessa leið í daglegu lífi – til vinnu, skóla og þjónustu. Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif.“

Vilhjálmur segir í pistli á Facebook-síðu sinni að slík gjaldtaka snúist ekki bara um einstaklinga.

„Aukinn flutningskostnaður leggst beint á fyrirtæki og dreifingu vara og mun óhjákvæmilega skila sér út í verðlag til almennings. Þannig hefur þetta áhrif langt út fyrir þau svæði sem nota göngin mest.“

Að hans mati þarf að ræða fjármögnun innviða af ábyrgð og með sanngirni að leiðarljósi. Erfitt sé að sjá réttlætið í því að leggja sérstaka gjaldtöku á eina af mikilvægustu tengingum landsins – sérstaklega þegar hún hefur þegar verið greidd.

„Þetta er stefna sem þarf að skoða mjög vel – og að mínu mati er full ástæða til að staldra við áður en lengra er haldið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Leggur til að eldri borgarar fái frístundastyrk eins og börnin

Leggur til að eldri borgarar fái frístundastyrk eins og börnin
Fréttir
Í gær

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“
Fréttir
Í gær

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni
Fréttir
Í gær

Síminn á gott í vændum – Gullkýrin sem hefur bætt mikið við sig á meðan öðrum fatast flugið

Síminn á gott í vændum – Gullkýrin sem hefur bætt mikið við sig á meðan öðrum fatast flugið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris tannlæknir varar við algengu vandamáli – Svona geturðu komið í veg fyrir það

Íris tannlæknir varar við algengu vandamáli – Svona geturðu komið í veg fyrir það