
FC Thun er við það að skrifa söguna í efstu deild Sviss þar sem liðið er komið með 14 stiga forskot á toppnum og gæti unnið sinn fyrsta stóra titil í 127 ára sögu félagsins.
Thun vann sér sæti í efstu deild á síðasta tímabili og eyddi aðeins um tveimur milljónum evra í leikmannakaup, langt undir því sem stórlið á borð við FC Basel og BSC Young Boys lögðu út.
Undir stjórn Marco Lustrinelli hefur liðið unnið níu af síðustu tíu leikjum sínum, þar á meðal sannfærandi sigra gegn bæði Basel og Young Boys, og sett félagsmet með átta sigrum í röð.
Gengi liðsins hefur verið líkt við ævintýri Leicester City árið 2016, en sigur Thun yrði einn sá óvæntasti í fótboltanum á síðustu árum.
Margir Íslendingar gætu kannast við Thun, en það er bærinn sem hýsti íslenska kvennalandsliðið og tvo leiki þess í lokakeppni EM síðasta sumar.
Fjöldi íslenskra stuðningsmanna lagði leið sína í bæinn, sem og á Stockhorn-leikvanginn, hvar Thun spilar heimaleiki sína.