fbpx
Föstudagur 06.febrúar 2026
Fréttir

Lögreglan óskar eftir vitnum að slysinu í gærkvöldi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 08:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að mjög alvarlegu umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld, en tilkynning um slysið barst klukkan 23.18.

Þar hafði bifreið staðnæmst við stólpa Vegagerðarinnar, á móts við hús Hjálpræðishersins, eftir að hafa verið ekið austur Miklubraut. Lögreglan leitar einnig eftir myndefni frá þeim sem fóru þarna um í aðdraganda slyssins og á það við um báðar akstursáttir, þ.e. til austurs og vesturs.

Í tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér nú á níunda tímanum er bent á að mörg ökutæki séu búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra.

„Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið abending@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í síma 444 1000.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Hanna útskýrir hátt verðlag í Fríhöfninni: „Við getum ekki alltaf verið ódýrust“

Hanna útskýrir hátt verðlag í Fríhöfninni: „Við getum ekki alltaf verið ódýrust“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Alvarlegt umferðarslys á Miklubraut í gærkvöldi

Alvarlegt umferðarslys á Miklubraut í gærkvöldi
Fréttir
Í gær

Þráinn: „Þegar upp er staðið var útkoman fyrir marga hreint helvíti og óbætanlegur skaði“

Þráinn: „Þegar upp er staðið var útkoman fyrir marga hreint helvíti og óbætanlegur skaði“
Fréttir
Í gær

Gísli sagði upp starfi sem hann elskaði til að geta hjálpað Lucy Letby – „Ég færði fórn í góðri trú og sagði upp“

Gísli sagði upp starfi sem hann elskaði til að geta hjálpað Lucy Letby – „Ég færði fórn í góðri trú og sagði upp“