

Dýraverndarsambandið er elsta dýravelferðarfélag landsins, stofnað 1914 og hefur verið leiðandi í baráttunni fyrir velferð og réttindum dýra á Íslandi. Dýraverndarsambandið beitir sér fyrir betri löggjöf og bættu eftirliti með velferð dýra, ábyrgu dýrahaldi og leggur áherslu á að efla opinbera umræðu um dýravelferð.
Í tilkynningu frá sambandinu kemur fram að Margrét hafi víðtæka reynslu af fjölmiðlum, starfaði á RÚV í 16 ár, sem varafréttastjóri sjónvarps- og útvarps og sem dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2.
Hún var um tíma yfirmaður íþróttadeildar RÚV og stýrði dægurmáladeild fréttastofunnar þar sem hún hafði yfirumsjón með fimm útvarpsþáttum: Hádegisútvarpinu, Morgun- og Síðdegisútvarpinu, Speglinum og Vikulokunum.
Undanfarin ár hefur Margrét starfað sem rannsóknarblaðamaður á Stundinni og Heimildinni og hefur þar m.a. fjallað um dýravelferðar- og umhverfismál. Hún hlaut blaðamannaverðlaun árið 2019 ásamt þremur blaðamönnum fyrir umfjöllun ársins um loftslagsbreytingar og árið 2023 fyrir viðtal ársins við Gyrði Elíasson skáld.
Árið 2014 skrifaði Margrét bókina Vakandi veröld – ástaróður sem er handbók með leiðbeiningum fyrir fólk um hvernig er hægt að lifa í sátt við náttúruna í hringiðu neyslusamfélagsins.
„Það er okkur mikill styrkur að fá Margréti til liðs við félagið og hlökkum við til samstarfsins. Dýraverndarsambandið hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og ég er sannfærð um að framlag hennar muni efla félagið enn frekar í baráttunni fyrir velferð dýra í landinu,‘ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, í tilkynningunni.