fbpx
Miðvikudagur 04.febrúar 2026
433Sport

Garnacho með fast skot á Manchester United

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 19:58

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir vilja meina að Alejandro Garnacho, leikmaður Chelsea hafi skotið á fyrrum félag sitt Manchester United í aðdraganda leiksins við Arsenal sem nú er að hefjast.

Garnacho gekk í raðir Chelsea frá United í sumar og er kantmaðurinn ungi ekki of vel liðinn á meðal stuðningsmanna Rauðu djöflanna.

Hann mætir Arsenal með Chelsea í seinni leik liðanna í enska deildabikarnum í kvöld, en Arsenal vann fyrri leikinn 2-3 á útivelli. Chelsea þarf því að sýna alvöru frammistöðu til að snúa einvíginu við í kvöld, en Garnacho vakti athygli á að United hafi unnið á heimavelli Arsenal á dögunum.

„Allir vita hversu erfitt það er að spila þar. Eftir fyrri leikinn heyrði ég marga segja að enginn gæti unnið á Emirates. En nú er staðan aðeins önnur. Ef Manchester United getur unnið þar, þá getum við það líka,“ sagði hann og margir stuðningsmenn United taka þessu sem sneið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Óttast ekki að verða rekinn á næstu dögum

Óttast ekki að verða rekinn á næstu dögum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hátt verðlag á HM vekur áfram upp furðu – Bílastæði kostar 36 þúsund og er langt í burtu

Hátt verðlag á HM vekur áfram upp furðu – Bílastæði kostar 36 þúsund og er langt í burtu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Pabbinn sáttur með að þau ætli að gifta sig – Sameinar tvær þekktar fjölskyldur

Pabbinn sáttur með að þau ætli að gifta sig – Sameinar tvær þekktar fjölskyldur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Draumaliðið – Leikmenn sem eru án félags og geta skrifað undir strax

Draumaliðið – Leikmenn sem eru án félags og geta skrifað undir strax
433Sport
Í gær

Hættu við skiptin – Hafði lokið læknisskoðun

Hættu við skiptin – Hafði lokið læknisskoðun
433Sport
Í gær

Sunderland með sannfærandi sigur

Sunderland með sannfærandi sigur