fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

West Ham að styrkja varnarlínuna eftir hálstak helgarinnar

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 2. febrúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

West Ham United er talið ætla að ganga frá kaupum samningi við Axel Disasi frá Chelsea í dag. West Ham hefur fylgst með Disasi allt félagaskiptagluggann, en staðan í varnarlínu liðsins hefur nú hraðað málinu.

Ástæðan er yfirvofandi þriggja leikja bann sem blasir við Jean-Clair Todibo eftir atvik í lok taps West Ham gegn Chelsea. Þar á Todibo að hafa gripið João Pedro hálstaki, sem gæti leitt til agaviðurlaga.

West Ham vill því tryggja sér styrkingu í miðverðinum sem fyrst. Disasi, sem hefur reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og með franska landsliðinu, er talinn henta vel í verkefnið.

Ef af félagaskiptunum verður fær West Ham reyndan varnarmann á mikilvægu augnabliki, á meðan Chelsea gæti losað um leikmann sem hefur ekki alltaf verið í lykilhlutverki á Stamford Bridge.

Um væri að ræða lán en glugginn lokar klukkan 19:00 í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal leiðir kapphlaupið – Vilja fleiri félög að borðinu til að hækka verðmiðann

Arsenal leiðir kapphlaupið – Vilja fleiri félög að borðinu til að hækka verðmiðann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hafði áhyggjur af Greenwood og vildi selja hann síðasta sumar

Hafði áhyggjur af Greenwood og vildi selja hann síðasta sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segir Rapinoe vera hræsnara – Styður ekki opinberlega við konur í lífshættu

Segir Rapinoe vera hræsnara – Styður ekki opinberlega við konur í lífshættu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Samsærið um Neymar fer aftur á flug – Í ellefta skipti á tólf árum sem þetta gerist

Samsærið um Neymar fer aftur á flug – Í ellefta skipti á tólf árum sem þetta gerist
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Kompany segir að þetta geti orðið besti leikmaður í heimi – „Hann hafði þessa þráhyggju fyrir smáatriðum“

Kompany segir að þetta geti orðið besti leikmaður í heimi – „Hann hafði þessa þráhyggju fyrir smáatriðum“